13.06.2008 21:47:12 / martinv
Um er að ræða lítinn snáða sem á við fötlun að ræða og þarf á ferðaþjónustu að halda.
Eins og alltaf eru tvær hliðar á öllum málum og fram til þessa hefur maður bara séð aðra þeirra þangað til í dag.
Að því sem mér skilst að þá er hann bara tekinn undir aðra hendina eins og einhver kartöflusekkur og stóllinn sem hann ferðast í undir hina, oft hefur komið fyrir að honum hafi verið skilað inná leikskólann sinn og enginn látinn vita að hann sé kominn eða talað við neinn til að taka við honum, það var bara fyrir tilviljun að starfsfólk leikskólanns tók eftir því að bíllinn kom og fór og tvígang hefur verið farið með hann á vitlausann stað og hann bara settur inná gólf. Sem betur fer vildi svo vel til að starfsfólk á þessum stað kannaðist við kauða og kom honum í réttar hendur.
Þetta væri svo sem ekkert stórmál ef að hann gæti tjáð sig eitthvað og eða gert sig skiljanlegan á einn eða annan hátt, en svo er ekki. Hvað ef hann hefði ráfað út og !!!! Ja ekki þori ég að hugsa þá hugsun til enda.
Móðir drengsins hringdi í viðkomandi ferðaþjónustu og kvartaði yfir meðferð barnsins sem og að hann er látinn sitja í framsæti viðkomandi ökutækis í stól sínum.
Svörin sem móðir drengsins fékk voru alveg út úr kortinu.
Sagt var að þetta væri bara eins og strætó og ekkert annað, og ef að foreldrar treysti ekki barninu til að fara einu í strætó ætti barnið ekki að fara með ferðaþjónusu fatlaðra. Þetta var eitt af þeim svörum sem móðirin fékk. Auk þess skynjaði móðirin að umrædd ferðaþjónusta vildi helst sleppa við að aka viðkomandi þar sem hann væri það ungur og umstang í kringum hann og vildu helst losna við að sinna hans akstri.
Ef maður spáir aðeins í hlutina.
Er vitað um eitthvert foreldri sem sendir 5 ára gamalt barn eitt í strætó? og þá er ég að tala við barn sem telst vera andlega og líkamlega heilbrigt og sem getur tjáð sig. ALLAVEGA EKKI ÉG.
Hvernig á viðkomandi aðili að verða sér út um þjónust sem hann á rétt á ef að hann fær hana ekki hjá þeim sem hana eiga að veita.
»
02.05.2008 10:38:27 / martinv
Á miðvikudaginn var minn á leið heim úr vinnu, er eitthvert helvítis fíflið gat ekki drulluhalast til að keyra eins og maður og að því virðist hafi keyrt mig niður í miðju
hringtorgi. Allavega miðað við skemmdir á hjólinu er eins og að spegillinn á bílnum hafi rekist í hraðamælinn á hjólinu. Þannig að þessi aumingi hefur keyrt á mig og eftir því sem ég hef heyrt hafi viðkomandi stungið af slysstað.
Verst er að ég man ekki allt of vel eftir því sem gerðist þar sem ég hef fengið slæmt höfuðhögg, þannnig að ef einhver sem les þetta og hefur einhverja vitneskju um málið væri ég þakklátur fyrir allað þær upplýsingar sem hægt er að f.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að ég er óbrotinn, að vísu vel krambúleraður,rispaður og aumur í skrokknum og háma í mig verkjapillum í stórum stíl samkvæmt læknisráði.
Mér er sagt að hjólið sé lítið skemmt, en á eftir að skoða það betur. Bara að það hafi ekki verið í gangi meðan það lá á hliðinni. Gallinn og það er alveg ónýtt, en það er eitthvað sem má alltaf kaupa nýtt.
Miðað við skemmdir á hjóli og hvernig outfittið er skrámað og spænt, viðrðst sem að ég hafi dergist meðfram ökutækinu áður en ég skell í götuna. Alla vega er sólinn á stígvelunum spændur upp í stál.
»
25.04.2008 20:31:48 / martinv
Þá er sumarið loksins komið og virðist stefna í ekta sunnlenskt sumar. Lágskýjað og rigning virðist ætla að verða aðalsmerki sumarsins eins og oft, en inná milli koma yndislega þurrir kaflar og þokkalegar hitatölur sem alla var farið að lengja eftir.
Í gær var svo farið í hina árlegu hópkeyrslu sniglanna og held ég að enginn hafi séð eftir því. Þetta var ábyggilega sú fjölmennasta til þessa, talið er að 300-350 hjól hafi tekið þátt þetta árið og var tvímennt á mörgum. Strauað var upp á skaga í gegnum hvalfjörðinn og staldrað við í ferstikklu og trillað í gegnum göngin á bakaleiðinni. Veðrið var alveg súper ef maður sleppir rokinu og rigningunni.
kveðja.
Matti sem er enn að þurka gallann.....
»
02.03.2008 18:03:28 / martinv
Ég bý í príðishverfi og á veturna á það til að snjóa hér eins og annarsstaðar.
Þegar það er ofankoma og vindáttin eins og í síðustu nótt og í dag, á gatan
þar sem ég bý það til að lokast sökum snjóa, sem er reyndar ekkert tiltökumál.
Þeir sem eru á fólksbílum lenda í vandræðum, enda snjórinn það mikill.f
Líklega hefur bærinn fengið snjóruðningstæki í jólagjöf, alla vega var þetta sjaldséður
hlutur hér áður fyrr. Allavega varð ég vitni að svolitlu undarlegu í dag, þetta ágæta
snjóruðningstæki var að störfum í dag og ruddi aðeins inn tæplega hálfa götuna, þar sem
var minnstur snjór en ekki alla götuna þannig að fólk komist leiða sinna.
Þetta er allt saman hálf skrítið hvernig að þessu er staðið og manni datt helst í hug að:
Fjárveitingin hafi ekki dugað fyrir meiri mokstri?
vinnutíma lokið?
eða dúdinn á tækinu ekki nennt meiru?
eða bara að snjóplógurinn hafi rispast og viðkomandi farið heim grátandi?
Hvað veit ég.
kv.
Einn sem er óhress með snjómokstur bæjarins.
»
18.02.2008 09:33:01 / martinv
Það mætti halda að vorið væri á næsta leyti. Allavega er farið að rigna á fullu og snjóinn að taka upp, ýmis gróður og annað drasl að koma í ljós sem kallar á ákveðin verkefni og hitatölur að einhverju marki farnar að sjást. En allavega er búið að rigna það mikið að minns stóðst ekki mátið um helgina og trekti í gang og tók vænan rúnt, þó svo að allt væri blautt. Þetta kostaði að vísu hellings þrif á eftir , en hva. þetta var vel þess viðri.
Guttinn heldur áfram að þramma um allt og eru fyrirsöður eins og þröskuldar og stigar alltaf að verða minni fyrirstæða, en það er farið varlega yfir, sem er gott. Að vísu er farið að bera á öskurköstum sem gera allt og alla brjálaða. Hvað veldur er ekki vitað, hvort þetta séu aukaverkanir eða einfaldlega sumir búnir að fatta það að þetta virkar til að fá óskipta athygli ( stundum nefnd frekjuköst ).
Það er einnig farið að bera aðeins meir á notkun einfaldra tákna. Aðvísu þarf stundum að beyta ýmindunaraflinu aðeins til að fatta þau, þar sem hann notar sína útgáfu af þeim. En tákn eru tákn og þetta virðist vera að koma hægt og rólega. Einnig er farið að bera aðiens meira á hljóðamyndunum. Hver veit kanski kemur málið hægt og rólega.
kveðja
M
»
11.02.2008 23:02:14 / martinv
Ég hef ekki séð ástæðu til að tjá mig um þetta fyrr, kanski er þetta afrakstur foreldris
eftir þátttöku námskeiðs um þetta málefni.
Þannnig er að skömmu fyrir jól fengust þær fréttir að enn ein greiningin hefði bæst við. Um var að ræða dæmigerða einhverfu og var þetta níunda eða tíunda greiningin, þetta kom okkur reyndar ekki á óvart þar sem ýmis einkenni einhverfu hefðu gert vart við sig, en áfallið er samt alltaf til staðar.
Flestir telja sig hafa heyrt talað um einhvefu og hafa einhverja hugmynd um hvað er að ræða. En hvað er einhverfa, jú einhverfa er þroskaröskun á taugakerfi einsatklings og er hún jafn misjöfn og einstaklingarnir eru margir.
Félagsleg færni einstaklings er mjög takmörkuð eða engin. Einnig geta til að tjá sig og gera sig skiljanlegan mjög afmörkuð. Einnig eiga viðkomdi til að festat í ákveðnum hreyfingum og oftast er um að ræða ákveðið hegðunarmynstur.
Þessi tiltekni einstaklingur er með dæmigerða einhverfu og er annsi lokaður, einginlega haðlæstur á köflum. Augnsamband er lítið sem ekki neitt og það er bara horft í gegnum mann eða framhjá. Einstaka sinnum sjást og fást viðbrögð þegar hann er sóttur og þá sérílagi ef honum leiðist þar sem hann er.
Eins og hjá mörgum öðurm er talgeta engin og tjáskipti í algeru lágmarki. Einnig ber mikið á svokölluðum sjálförvunar hreyfingum ( þetta er þegar einstaklingur festit í ákveðnum hreyfingum og þær endurteknar í lengri eða skemmri tíma).
Ekki ætla ég að telja mig neinn sérfræðing á þessu sviði og það allra síst eftir daginn í dag. En sem foreldri í þessari stöðu er maður vissulega að verða sér um vitneskju um
þetta málefni.
M
»
30.01.2008 17:50:55 / martinv
Það eru alltaf að lengjast vegalengdirnar sem sá littli labbar
og nú er maður farinn að breyta um stefnu, snúa við og rölta fram
og aftur. Það á líka við þegar gengið er meðfram hlutum, það er í
mesta lagi stuðst við hlutina af og til, bara svon til öryggis.
Nú er maður líka búinn að fá klósetstól og er byrjaður að eiga
við það skrímsli. Þetta er alveg hörku græja með armpúðum og allt,
manni er bara einfladlega plantað í stólinn og trillað yfir dolluna
svo að maður geti skilað sínu. Það kemst eflaust í vana að
nota þessa græju þegar fram líða stundir.
Kveðja M.
»
16.01.2008 20:08:20 / martinv
Það er farinn að sjást mun meiri munur á sumum með hverjum deginum sem líður og er næstum hægt að tala um smá framfarir með hverjum degi sem líður. Nú eru vegalendirnar sem drengurinn gengur án stuðnings farnar að lengjast og einnig er maður farinn að geta staðið án stuðnings í smá stund í einu. Ætli sumir verði ekki bara farnir að ganga sjálfir með vorinu.
Á dögunum var maður svo plöggaður við mælitæki og leiðslum troðið í gegnum nebbann og maður látinn kingja herlegheitunum. júbb, það átti nefnilega að mæla magasýrur vegna gruns um bakflæði og sólahring síðar var öllusaman svo kippt í burtu og svo átti bara að bíða eftir niðurstöðum lækna. Og til mikillar hamingju var allt eins og það átti að vera og þetta er þá bara eitthvað annað sem er að trufla. Eins og einn bifvélavirkinn sagði: Ef það er ekki þetta, þá er það eitthvað annað.
Nú verður bara að koma í ljós hvað sá litli er fær um.
Kveðja
M
»
13.01.2008 21:12:17 / martinv
Jæja, loksins er þessu jólastússi lokið og hlutirnir að verða nokkurnvegin eðlilegir aftur. Allar æfingastöðvar stútfullar af fólki sem ætlar að ná af sér aukakílóunum eftir allar átveislur jólanna og svo er sennilega helmingurinn þegar hættur að mæta og restin gefst upp eftri tvær til þrjár vikur til viðbótar og útsölurnar gengnar í garð. Sem sagt allt að falla í sinn vanalega farveg.
Í dag varð ég vitni af litlu kraftaverki. Minns sá lítinn dreng ganga eina fimm metra óstuddur, þetta er kanski ekki svo merkilegt nema fyrir þær sakir að það var ekki reiknað með að hann kæmi nokkurntíman til með að ganga án stuðnings. Þessi sami piltur gerði atlögu við sófaborðið á heimilinu og prílaði upp á það og var fljótur niður er sussað var á hann. Átti að skamma kauða fyrir uppátækið eða hrósa honum. Góð spurning það.
Kveðja M.
»
19.12.2007 22:57:24 / martinv
Hér er alvöru jólaglögg á ferðinn Varð að miðla þessu áfram.
Þar sem um mikið magn ávaxta er að ræða má sleppa ávöxtunum
******************************************************************************
FINNSKT JÓLAGLÖGG
1 líter vodka
1 rúsína
Hrært og skreytt með greni oooha'held'é !
****************************************************************************** Og svo syngja allir með !
Skín í væna vínflösku
Og huggulega bjóra
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum ill'í desember
burt með sokk og skó
hér af vín'er nóg.
Ó hvað ég elska jólin
von'ég hitt'á stólinn.
»
31.08.2007 21:01:21 / martinv
Eins og það er nú gaman að ferðast er alltaf jafn gott að koma heim.
Þannig var að minns kikkaði á námskeið í danaveldi. En ég verð að viðurkenna að ferðalagið þangað var kanski hvað eftirminnilegast, allavega þegar tekið er mið af því sem maður sá og upplifði.
Fyrsta verk eftir að lent var í köben var að sjálfsögðu að fá sér öl og pulsu og tékka sig inn í innanlandsflugið. Þetta var nú líka eitthað til að prófa. Rellan minnti mann á gamalt skítarör með vængjum svo þegar rellan fór á loft hristist hún og skalf eins og ég veit ekki hvað og ekki var háfaðin minni. Til að efla traust farþega sat ein flugfreyjan fyrir enda gangsins spent í sætið sitt með sex pukta belti.
Við lendingu á hinum enda dk. tókum við eftir því að það voru bílar stopp við hlið flugbrautarinnar á rauðu ljósi. Viti menn, flugbrautin lá þvert yfir veg og það voru gatnamót með ljósum við flugbrautina. ha,hmmm ja hérna, þvílik snilldar verkfræði þar að verki.
Fyrir utan öll undarlegheit og skoðunarferðir sem voru annsi stuttar sökum smæðar bæjarins sem dvalið var, var þetta hin fínasta ferð.
Ekki má nú gleyma hótelinu. Þetta var eldgamalt hótel og var byggingin löngu orðin friðuð, þannig að hótelið spannaði yfir nokkrar byggingar og var orðið að hálfgerðu völundarhúsi. Til dæmis var herbergið mitt í byggingu sem var hinummegin við götuna og herbergið var það stórt að, ef ég ætlaði að skifta um skoðun lá við að ég þyrfti að fara fram á gang.
kveðja Matti sem er fegin að vera kominn heim.
Kveðja Matti sem er feginn að vera kominn heim.
»
19.08.2007 10:35:09 / martinv
Sumarið er tíminn og því ekki mikið setið fyrir framan tölvuna. Heldur hefur tíminn verið notaður til ferðalaga og framkvæmda.
Aldrei þessu vant að þá var hjólið sett á númer eftir langa bið og hefur það varla stoppað síðan, sem bara hið besta mál. Um daginn fór ég á rúntinn með félaga mínum sem ég hafði ekki hjólað með lengi og ferðinni var heitið niður í miðbæ og endað niður á Ingólfstorgi. Það virðist sem það sé endastopp flestra hjólara. Manni leið reyndar eins og maður væri með eitthvað forneskjulegt ökutæki í höndunum þegar maður sá allar hinar krómbollurnar sem glönsuðu eins og ég veit ekki hvað og sjálfsagt flest þeirra aldrey séð rigningu. Sem er reyndar alveg skiljanlegt þar sem það gæti fallið á krómið.
En alvöru hjólamenn finnast þó inná milli. um daginn var ég staddur uppi við litlu kaffistofu ásumt fleirum að fá okkur kaffi eftir góðann sprett um götur stórreykjavíkursvæðisins, er aðsvífandi kom einn að austan á vel saurugu hjóli og að sjálfsögðu gáfum við okkur á tal við kauða. Eftir smá spjall kom í ljós að hann hafði skroppið á tónleika á Stöðvarfirði deginum áður og ákveðið að klára bara hringinn, þar sem hann var kominn þetta langt. Þetta er sko alvöru.
kv. Matti sem er farinn út að hjóla.
»
03.06.2007 00:14:26 / martinv
Í dag gerðist maður menningalegur eins og það kallast á fáguðu
máli og var viðstaddur opnun á sýningu í fræðisetrinu á Hvolsvelli
og kikkaði á sýningu Njálu í leiðinni ásamt öðru merkilegu.
Straujað var úr bænum upp úr hádegi og stímt austur á bóginn,
veðrið var ekki upp á marga fiska eða bara skítaveður en því sem
austar dróg fór að byrta yfir og rétt fyrir austan Hellu var
komið þetta fína veður. Að sýning lokinni var farið að næra
gríslingana og ákveðið að nota góðaveðrið. Ákveðið var að skoða
Seljalandsfoss sem nú var ekki svo langt í burtu og verður maður
seint svikinn af íslenskri nátturu í góðu veðri. Jamm, maður hefði
betur tekið þann rauða og nýtt tækifærið og skroppið inní Mörk, 30
km er nú ekkert að tala um, en það er gott að vera vitur eftirá.
Maður man þetta bara næst.
Einhvertíman tekur allt gott enda og ekki klikkaði sunnlenska
sumarveðrið. Rétt fyrir utan Hveragerði fór að rigna og það var
rigning alla leið í bæinn og það rignir enn.
Kv. M
»
21.05.2007 20:06:56 / martinv
Þetta er ábyggilega eitt styðsta sumar íslandssögunnar þó að
mörg hafi verið stutt. Ætli að veðurfræðingarnir séu ekki farnir að
tala um snjólétt sumar.
Oft hefur maður upplifað að það komi smá snjódrífa um mitt
sumar, en ekki að það snjói tvo eða fleiri daga í röð.
Þannig að þetta er að verða spurning um hvert eigi að fara í
sum....... ég meina vetrarfíinu?
Kveðja
Matti sem er að fara að skifta yfir á vetrardekk.
»
20.05.2007 11:45:34 / martinv
Um daginn heirði ég á það
minnst að sumarið væri komið. Eitthvað hlýt ég að hafa miskilið
þetta allt saman og ákvað að skoða málið aðeins betur og vakti það
bara fleiri spurningar eins og:
Er eðlilegt að það snjói í fjöllin í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins ásumrin
?
Telst það eðlilegt að hitastig fari niður fyrir
frostmark á nóttunni ?
Ja, maður er kansi orðinn það gamall og púkó
að það heyri til þeirra góðu gömlu daga að þegar fólk gekk um
léttklætt á sumrin, Nútíma sumarfatnaður er kannski bara sá
sami og veturnar "húfa og vettlingar" Ef svo er, að þá held ég
að sé segi bara, ég man í þá gömlu
góðu
Kv.
M
»
Síður:
1 2 3 ...
5